24.04.2009 09:57:43 / Inga
Sú lífsspeki að horfa alltaf á björtu hliðarnar, smæla framan í heiminn og allt það fékk á sig vænt högg í nótt og dag. Í þessum rituðu orðum ligg ég nefnilega heima á hitapoka, óglatt eftir allt vonda hunangsteið sem ég sturtaði í mig í morgunsárið út af svakalegu hálsbólgunni minni og síðast en ekki síst er ég með einhverja bölvaða kviðverki sem gera það að verkum að ég geng um í 90°horni. Eins og þetta sé ekki nógu ömó þá byrjaði þetta allt á aðfaranótt föstudags og blómstrar pottþétt um helgina. Allt gerðist þetta þó ég hafi verið jákvæðnimeistari síðustu daga og smælað tryllt framan í heiminn upp á síðkastið. Gö-latað.
»
22.04.2009 11:18:04 / Inga
Nei, haldiði ekki bara að síðasti vetrardagur sé mættur á svæðið, svona líka ógeðs- og ömurlegur. En það er allt í lagi því sólin kemur á miðnætti og allt verður gott á ný næstu mánuðina.
Í sumar ætla ég nefnilega að tölta um á hælaskóm í smart sumarkjólum, leggjast á Austurvöll og tana með bjór í hönd (sem er eiginlega möst því ég hef aldrei gert það og finnst ömó að vera útundan) áður en ég skottast heim í sandölunum mínum og grilla dýrindis mat úti á svölum með freknur og sólgleraugu á nefinu. Þá verða útilegurnar töluvert fleiri en síðasta sumar og ég fæ meira að segja hálfsmánaðar sumarfrí, nokkuð sem ég hef ekki notið í langan tíma. Síðan er alltaf svo margt um að vera, eins og hallópalló það eru kosningar næstu helgi, Eurovision er skammt undan og það er alltaf gaman að parta í kringum það, 17. júní er reyndar dagur sem hefur lit sínum glatað en allt í góðu, því ég á svo afmæli !! Hvílík gleði og hamingja sem fylgir sumrinu, ég get bara ekki beðið!
»
19.04.2009 21:30:26 / Inga
Sjitt sjitt sjitt sjitt.
http://www.youtube.com/watch?v=LzHDY6mcWjM&feature=related
Shine er náttúrlega bara svalasta mynd í heiminum geiminum, sem má þakka Rachmaninov og þessu atriði ásamt fleirum. Tékkið á myndbandinu frá 3:20-5:10. Ég brunda á mig!
»
08.04.2009 20:18:22 / Inga
Ég ætlaði að vera ferlega fersk og hjóla í ljós. Ég tók niður hjólið úr bílskúrnum og reif um leið niður haug af kössum sem hrúguðust yfir mig rétt áður en ég klemmdi mig á stýrinu. Út fór ég með hjólið og dreif mig af stað en það fyrsta sem ég gerði var að klessa á gangstéttabrún og fljúga á hausinn, vini nágranna míns til mikillar skemmtunar, en ég var svo heppin að hann stóð úti á svölum að reykja akkúrat þá. Til að forða mér frá þessu skelfilega vandræðalega augnabliki flýtti ég mér aftur á hjólið og spanaði af stað, en þá var keðjan dottin af svo ég spólaði bara að staðnum áður en ég valt á hliðina, nágrannavininum til enn meiri ánægju. Eftir að hafa sett mig stutta stund í handlagna gírinn og lagað keðjuna komst ég loksins í burtu frá þessum óþægilega manni, sem ég gladdi þó svo mikið, og vonaði að fall væri bara fararheill. Svo var ekki. Ég brunaði af stað og fannst ég svo sjúklega hip að það steig mér til höfuðs og ég ákvað að ég gæti alveg hjólað og talað í símann bæði í einu. Það gat ég ekki. Ég hringdi í Ágústu systur og talaði stuttlega við hana, það er að segja þar til ég missti jafnvægið, og um leið símann, og hjólaði svo beina leið út í blómabeð. Um leið og ég klöngraðist á fætur heyrði ég nokkrum metrum frá mér úr símanum: ,,Inga? Inga?! Dastu??". Ég ákvað að ég ætti að halda báðum höndum á stýrinu í bili svo ég kvaddi og hélt leið minni áfram þar til ég var loksins komin í öruggt hvarf í ljósabekknum. Þar brann ég.
Ég ætla aldrei að segja ,,þetta er jafn auðvelt og að hjóla".
»
06.04.2009 13:27:26 / Inga
Siggi Palli enskukennari: ,,Birth of a Nation er allra mesta rasistamynd sem gerð hefur verið, og...."
Dagur: ,,fyrirgefðu, sagðirðu Birth of a Nation eða Birth of an Asian?"
Hahahahaha, æ þetta var svo gott. Ég vona að ég sé ekki sú eina sem hef hlegið að þessu í fjögur ár.
Annars er lítið að frétta héðan úr 113. Ég geri ekki annað en að hlakka til sumarsins þessa dagana...grill, bjór, sandalar, útilegur, freknur og annar aukinn frískleiki. Ég held ég hafi aldrei verið jafn föl á ævi minni og ég er núna, samt er ég nýkomin heim frá Tene. Ástandið er slæmt. Nema haldiði ekki bara að pabbi minn hafi uppfyllt gamlan draum hjá mér og splæst í gítar fyrir heimilisfólkið. Nú er ég búin að æfa mig og æfa mig og kann klárlega að spila Frost er úti fuglinn minn, og verð með hann á replay í tjaldferðalögum sumarsins. Ég mæli með að ferðafélagar mínir læri textann strax svo allir geti tekið vel undir.
Hefur svo einhver farið í Kringluna nýlega? Ég fór um helgina og hvílíkt ógeð sem við búum við á Íslandi, það er önnur hver manneskja feit, og næstum því allir skítugir eða ógeðslegir á einhvern annan hátt. Þvær fólk sér ekki lengur? Ég held barasta ekki, svei mér þá. Ég hélt að ég væri ógeð þegar ég fer algjörlega ómáluð út eða í sömu peysu og ég var í daginn áður, en alla malla það er hátíð miðað við meðborgara mína. Þetta er algjörlega til feitrar og háborinnar skammar og ég krefst þess að menn taki sig til í andlitinu og greiði sér a.m.k. áður en þeir stíga út úr húsi. Ekki að ég sé að tala um einhvern sérstakan blogg-lesanda eða neitt, en maður verður bara hálfþunglyndur af að horfa upp á þetta.
En yfir á léttari nótur, 17 dagar í sumardaginn fyrsta!
Koss og sleikur,
Inga
»