Ingapinga

22.12.2008 19:07:28 / Inga

Juleferie

Margt búið að gerast. Nenni ekki að skrifa um það. Djammaði á föstudaginn. Ekki laugardaginn. Gaman á föstudaginn. Fór í húsdýragarðinn í dag. Sá blóðuga hænu. Fékk salmonellu.

Gleðileg jól.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 13:50:13 / Inga

fleiri draumar

Eldgos

Að sjá eldgos er aðvörun til þín um að temja þér stillingu og slíta ekki vináttuböndum með óhemjugangi.


Sjit man, ég vona að ég geti tamið mér stillingu, langar klárlega ekki að slíta neinum vináttuböndum.

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.12.2008 17:44:41 / Inga

skrattans frídagurinn

Í dag tók ég mér hálft helgarfrí og notaði tímann í að mótmæla á Austurvelli, í þeirri veiku von að ég myndi hitta einhvern sem ég þekkti, og auðvitað líka til að sýna hvar Davíð keypti ölið. Á vellinum hitti ég engan sem ég þekkti, enda mjög hæpið að það hefði gengið eftir þar sem flestallir eru í miðjum próflestri, og eftir á fór ég á kaffihús að drekka heitt kakó með pabba og fór svo í Kolaportið. Sá fyrrum ágætisstaður er ekki eins og hann var í denn takk fyrir, ég gekk inn og fann strax ógeðslegu flóamarkaðslyktina setjast í fötin mín. Þegar ég gekk svo í gegnum pleisið átti ég fullt í fangi með að sneiða framhjá skítugu og ólekkeru fólki, svo ég nefni ekki barnið í kerrunni sem var búið að æla á sig og dreifa því út um allt andlit án þess að nokkur mamma eða pabbi tæki eftir því. Portið er því klárlega gone downhill.

Án þess að vilja vera neikvæð þá stóð þetta hálfa helgarfrí langt í frá undir væntingum. Mér fannst ég klárlega vera ein í heiminum fyrir utan allt þetta fullorðna fólk sem finnst geðveikt að vakna snemma á laugardögum og klæða börnin sín í ljót helgarföt og labba út í bakarí til að éta fullkomlega kringlótt rúnstykki áður en þau skottast niður í bæ til að láta sig þjóðfélagsmálin varða. Óþolandi týpur. Ég ætla klárlega aldrei að lifa svona leiðinlegu lífi. Börn eru hér með tekin út af dagskrá, og ef verðandi eiginmaður minn er að lesa þá má hann hér með hætta við líf með mér ef honum svo hugnast. Börn eru no-no. Klárlega. 

Að lokum vil ég láta ykkur vita að tíminn frá morgni og fram að hádegi er án nokkurs efa leiðinlegasti tími sólarhringsins og próflestrartímabilið leiðinlegasti tími ársins. Og það er ekki til frekari umræðu.

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.12.2008 17:01:26 / Inga

Gullkorn dagsins *breytt*

Próflesturinn er í hámarki og af því tilefni er auðvitað allt sjúklega fyndið. Þar á meðal þetta:

,,Víst kann ég ensku: moðerfokker" (mamma)

,,Er hann með afró?" (Ágústa)

Mamma: ,,Mér finnst þetta nú bara vera eins og Jerry mús"
Gústa: ,,uu meinarðu Jenni?"

,,Eru bara allsherjar skapaþrif í gangi??" (Kristín frænka og innsláttarvillan)

,,Halló! hallóó-hallóó-allóó-alló-lló-ó" (Gústa kallaði inn um eyrað á mömmu til að láta bergmála)

,,mamma, ertu að sofna?"
,,hári?"


Sjit hvað við erum hip og happenin. Þetta er svo pottþétt ekkert fyndið fyrir öðrum en okkur.

» 8 hafa sagt sína skoðun