Ingapinga

31.12.2006 17:54:50 / Inga

Yfirlit fyrir 2006

Í lok síðasta árs skrifaði ég annál fyrir árið 2006 eins og ég vonaðist til að það yrði. Hér á eftir fer ég yfir hvað rættist og hvað ekki...spennandi, ha? ;)

 

Annáll 2006

Janúar ... Skólinn byrjar og tekinn með trompi. Cösufagnaður strax fjórða janúar og Fjóla losnar ekkert við okkur Mörtu fyrstu vikuna.  Skyndipróf og verkefni verða fá og djammað almennilega fyrir vikið (og ekkert rugl í þetta skiptið heldur sterkir drykkir og byrjað síðdegis).
Átak fyrir ágústmánuð hefst. Muna að kaupa æfingamottu.

Tjah....skólinn byrjaði. Trompið lét samt eitthvað bíða eftir sér en Cösu var fagnað sem aldrei fyrr og Fjóla auðvitað glöð að sjá okkur sem fyrri daginn. Eitthvað var djammið dapurlegt hjá mér í ár en það er held ég bara gott mál.
Átakið fyrir ágústmánuð dó í fæðingu og æfingamottan er enn í búðinni.

Febrúar ... Það eru bara tuttugu og átta dagar í þessum mánuði svo það skal nýta hann vel. Sextánda verður árshátíð Framtíðarinnar og ef ég þekki félaga mína rétt verður allt fljótandi í öli vikuna í kringum þann dag. Það verður náttúrulega að smám saman auka og minnka drykkjuna til að fá ekki sjokk þennan eina dag. 0
Átak í fullu gangi og vonandi einhverjir farnir að láta á sjá.

Um þetta leyti hóf Marta utanskólanám og sást einungis í Cösu með ónefndum stórlaxi. Árshátíðin fór ekki eins og ég ætlaði henni að fara en vont getur alltaf versnað svo ég er fegin að ég hafi ekki framið neina skandala þetta kvöld. Allavega enga til að tala um.
Engin merki um neins konar átak sjáanleg.

Mars ... Kennarar byrjaðir á þeirri letjandi hvatningu að hræða mann með stúdentsprófum og ég giska á að Casa verði þá frekar fyrir valinu en Íþaka.
Örlítið misstig í átaki, enda erfitt að halda slíku til streitu í svo langan tíma, en allir ná sér aftur á strik og ekki þverfótað í gamla skóla fyrir handlóðum og kreatíni.

Jú stúdentsprófin voru yfirvofandi og maður vætti rúmdýnuna endrum og sinnum sökum þeirra en allt fór nú að lokum vel svo ekki verður yfir neinu að kvarta í þeim efnum.
Ekkert misstig í átaki þar sem það var ekki enn byrjað.

Apríl ... Gríðarlega leiðinlegur mánuður með páskafríi og próflestri. Meiri umfjöllun fær þessi guðsvolaði mánuður ekki hér.
Átakslínuritið tekur væna dýfu vegna prófsorga og páskafreistinga og einhverjir koma til með að sprengja af sér gallabuxurnar.

Já þetta var frekar leiðinlegur mánuður, spáin rættist. Hann fær ekki meiri umfjöllun hér, ekkert frekar en fyrir ári síðan.
Tjah þó ekkert átak væri í gangi tók allt heila klabbið væna dýfu þennan mánuð og sumir fóru m.a.s. aftur fyrir byrjunarreitinn. En það má svosem um páskana.

Maí ... Kræklingatímabilið hefst, Guðbjarti til ómældrar ánægju. Próf próf próf og svo endar þetta loksins með próflokum. Kennaramyndirnar teknar af píluspjöldunum og nýtt tímabil hefst með sól, kokkteilum og bæjarferðum með vinkonunum. Sundfötin dregin fram og kroppaskoðunarferðir í laugarnar taka við af Þjóðarbókhlöðunni.
Árangur átaks jafnvel orðinn svo góður að hægt sé að ganga ofan í laugina í stað þess að hlaupa.

Hmm...ég stundaði nú Þjóðó ekki svo grimmt í þessum mánuði og eitthvað var lítið um sól þetta sumar, en prófunum lauk þó seint og síðar meir og fyrir það vorum við öll þakklát. Þá tók loks vinnan við og biðin eftir útskriftarferð.
Ég held ég láti bara vera að ræða nokkuð um átakið í þessum mánuði.

Júní ... Sól og blíða, djammferðalög (tökum nokkur svoleiðis í sumar stelpur) og alveg heill hellingur af áfengi. Ég neita að vinna bara og vinna í sumar.
Átakið loksins farið að gefa af sér og girndaraugun í sælgætið jafnvel orðin sjaldséð.

Reyndar varð lítið um sól og blíðu, og hvað þá djammferðalög. Áfengi fór allt annað en inn fyrir mínar varir, enda tók ég held ég tvær eða þrjár djammferðir þetta sumar. Ég gerði í staðinn það sem ég hafði svarið að gera ekki. Vann bara og vann.
Á þessum tímapunkti er ég hætt að búast við nokkru átaki.

Júlí ... Ég verð nítján og þar fyrir utan verður sól sól sól og engar smávægilegar ferðir með grill og bolta í Nauthólsvík. Þegar þarna er komið sögu má maður oft ekki vera að neinu vegna undirbúnings fyrir ágústmánuð og sérstakar ferðir farnar í Kringluna eftir sundfötum, sólgleraugum og sandölum.
Allir orðnir stæltir og passa loksins í sundfötin sem þeir keyptu nokkrum vikum áður. Nú er ekkert eftir nema að skemma afraksturinn!

Mhm. Það rættist ekkert af þessu nema það að ég varð einu ári eldri.

Ágúst ... TYRKLAND VIÐ ERUM Á LEIÐINNI (heit þýðing á here we come, ha?)! Leifsstöð bíður með allar sínar nautnir og margir munu gleyma vegabréfinu heima af eftirvæntingu. Eftir djöfullegt flug sitjum við á hóteli og vitum ekkert á hverju við eigum að byrja. Endum með að taka þrjár tröppur í hverju skrefi á sundlaugabarinn og slaka á með Cosmopolitan í hönd.
Átakið deyr í þessum mánuði.

Ó þessi spá rættist svo sannarlega. Marmaris ég elska þig.

September ... Sjötti bekkur hefst. Busun og allur andskotinn lítur dagsins ljós og við öll orðin óttalega fullorðin.

Jebbs. Arnar var Dauðinn, Einar LePré, Emma, Gunnhildur, Kata og Silja voru Grýlur. 6.S skrifaði nöfn sín á spjöld sögunnar þennan dag enda tók hann sig best út í múnderingunni af öllum.

Október ... Næstsíðasta árshátíðin. Heimsóknum í aðsetur Fjólu fer fjölgandi eftir skyndilega og óvænta aukningu skyndiprófa auk þess að um þetta leyti rennur upp fyrir mörgum það dimma ljós að síðasti veturinn í Menntaskólanum er hafinn.

Ljósið var ekki jafn dimmt og ég bjóst við, þó ég muni auðvitað sakna Fjólu og pizzasnúðanna, allra þúsundáragömlu hefðanna og saggalyktinni í Gamla skóla.

Nóvember ... Þessi mánuður fær jafnvel minni umfjöllun en apríl. Getum við ekki bara sleppt honum?

Jú, sleppum honum bara.

Desember ... Tæpt ár liðið frá þessari færslu og margt breytt. Síðustu haustönn lýkur með síðustu jólaprófunum. Marta verður nítján og nýji bróðirinn eins árs klukkutíma seinna. Þarna verður hippatískan komin á fullt og útvíðar buxur taka gönguplássið á götum borganna. Nýr annáll lítur dagsins ljós og kannski hefur eitthvað af þessum þá kannski ræst.

Þið megið dæma sjálf um þennan ;)

Gleðilegt ár elskurnar mínar og ég hlakka til að hósta framan í ykkur öll á nýju ári! :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 03:20:43 / Inga

ó mig auma

Ef ég hefði fæðst nokkrum áratugum fyrr hefði ég beðið Clark Gable að giftast mér.

Kannski í næsta lífi þá.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 19:47:57 / Inga

Þorláksmessa er hátíð út af fyrir sig...

Ég hef ekkert borðað í dag. Er að spara plássið fyrir skötuna sem ég legg inn fyrir mínar varir eftir 55 mínútur.

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 12:59:40 / Inga

Áramótaheit

Ég er að spá í að heita á nýja árið í þetta skipti, þrátt fyrir að hafa gefist upp á þeim sið fyrir allmörgum árum sökum stöðugra mistaka í þeim efnum. Nýja áramótaheitið mitt mun líklega hljóða upp á stærstu loforð 21.aldarinnar í skólaefnum og námsátökum. Það kom nefnilega illa við mig að ég hafi í alvöru fengið gervihrós fyrir einkunnir frá kennaranum mínum. Ég átti von á þessu frá foreldrum, vinum og vandamönnum en kennaranum....nei.

Við þessu er þó aðeins eitt að gera og það er að lifa sem batnandi manni, enda hef ég heyrt að það sé best.

Eftirfarandi er uppkast, og einungis uppkast, að sögulegu áramótaheiti mínu, því fyrsta í tíu ár eða svo:
,,Ég Inga Kristín Skúladóttir mun taka mig á í lifnaðarháttum á komandi ári; líkamlegum, andlegum og fræðilegum. Ég mun klára Tjarnarhringinn á 11 mínútum og komast aftur í Fornarina gallabuxurnar mínar. Ég mun haga mér eins og virðulegri dömu sæmir með mátulegri dulúð, hæfilegri feimni og hóflegri drykkju. Stundum allavega. Ég mun rækta mín vinasambönd svo ég endi ekki ein í Kennaraháskóla Íslands, fái tólf manns í tvítugsafmælið mitt og þurfi að bjóða eingöngu Kennó-lúðum í innflutningspartýið mitt. Í fræðilegum efnum mun ég verða eins og umskiptingur en takmarkið er að læra líffræði og sögu samhliða yfirferð kennara, en ekki frumlesa neitt fyrir prófið, og ná toppeinkunn í íslensku og stærðfræði (þ.e.a.s. toppeinkunn á mínum mælikvarða), í skyndiprófum sem og stúdentsprófum. Ef ég mögulega get. Ég get það alveg. Vonandi. Svo krossa ég fingurna fyrir áttu í leikfimi."

Ef ég heiti því hátíðlega að uppfylla ofangreind atriði 1.janúar næstkomandi er öll hjálp félaga minna kærkomin og nauðsynleg svo að ef einhver sér mig slugsa hefur hann leyfi mitt til að tuska mig til, kannski sparka duglega í sköflunginn á mér. En einungis ef ég hef hreðjarnar í að lofa svo stórum orðum.

I'll keep you posted!


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 14:07:41 / Inga

Þynnkubömmer ársins

Það hlaut að koma að því að ég drykki yfir mig. Reyndar var ég ekki neitt meðvitundarlaus eða slefandi full með rassinn út úr kjólnum en drukkin varð ég og er ennþá á bömmer yfir veseninu á mér. Ég hefði ekki átt að binda svona miklar vonir við blessað jólaballið en einmitt vegna þessa kvölds, sem endaði reyndar betur en á horfðist í fyrstu, hlakka ég enn meira til að komast úr MR en áður. Þið sem voruð á staðnum vitið hvað ég meina.

Nú er bara að redda sér hauspoka fyrir 4.janúar og reyna að draga sem mest af mannorðinu upp úr ræsinu. Gleðileg jól...


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 13:38:30 / Inga

Annað spree

Ég veit ekki hvar þetta endar eða hvort þetta endar. Ég fór í Kringluna í morgun klukkan tíu, nýkomin frá húð- og kynsjúkdómalækni, feeling fresh bara (nó wörrís, ég var þarna út af húðinni, ekki kynsjúkdómi ;) ) og kom heim úr Smáralindinni bara rétt í þessu. Ég keypti mér eina skó, tvær hárspennur, eina skyrtu (já Una :^)), djammbol/kjól, grænan síðerma bol og eitt vesti sem ég rakst á og var á of góðu tilboði til að hafna því. Svo tvennar nærbuxur og hring í TopShop. Svo sá ég kjól í Zöru sem var uppseldur og bölvað grjónið vildi ekki láta mig fá kjólinn á gínunni. Jæja. Ég hef svo sem ekki gott af því að eignast fleiri kjóla. Á meira að segja nokkra ennþá með miðanum á inni í skáp... :^) En næstu stelpu sem ég sé í svona kjól ætla ég að rífa úr honum og eiga sjálf. Óþolandi að elska föt sem maður getur ekki eignast. :cry:

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 11:13:19 / Inga

Og nú er ég...

.

BÚIN Í PRÓFUM.

.


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 19:13:44 / Inga

Ég þoli ekki....

  • daginn fyrir síðasta prófið - þó hann sé nú skömminni skárri en dagurinn fyrir fyrsta prófið...
  • Stjarnvísindi - þau eru leiðinlegri en jarðfræðin (ég held mig samt enn við að tímarnir séu hressandi byrjun á skóladegi)
  • þrettán ára kærustupör - það er bara ekki hægt að vera svona ástfangin krakkar mínir, þetta er allt í kynfærunum á ykkur
  • malt og appelsín í dós - bara eitthvað plat Jólaöl
  • smákökur - ekki jafn góðar og þær ilma út fyrir að vera
  • íþróttir - slæmur félagsskapur fyrir gangráðinn minn
  • Katya í Neighbours - í fyrsta lagi myndi ég ekki vera svona áfjáð í að fá forræði yfir fallegu suðrænu alsystkinum þínum verandi grjón sjálf, einhver hefur platað þig í æsku vina mín... svo máttu droppa tussuskapnum
  • þegar pabbi gleymir lyklinum í svissinum í bílnum inni í bílskúr og útvarpið er í gangi alla nóttina... - ...í morgun klukkan hálfníu stóð ég í ströngu við að ræsa rafmagnslausan bíl og hálftími í próf
  • kennara sem gera glærubakgrunninn svartan - ég tæmdi heilt blekhylki í prentaranum í dag...þúsund þakkir stjörnustrákar
  • heimska Íslendinga - bæði þeir sem virða ekki umhverfisaðstæður við akstur og svo þeir sem leika sér að umferðinni (sagt með fyrirvara og vitneskju um að slys henda oft óvart og af sjálfu sér)

Í tilefni síðasta punktsins ætla ég að segja ykkur stuðandi sögu sem mamma sagði mér um daginn. Fyrir nokkrum árum varð slys við Flúðir minnir mig þar sem ungur maður ók á gangandi vegfaranda, stelpu um tvítugt. Lögreglan kom á staðinn og sjúkrabíll og á meðan bráðaliðarnir stóðu í ströngu við að reyna að bjarga stelpunni tók einn lögreglumannanna eftir því að ökumaðurinn stóð þarna með tárvot augu og hertan munnsvip. Lögreglumaðurinn ákvað að ræða við hann og veita honum einhvern vott af áfallahjálp þar sem hann vissi að svona atburðir taka mikið á þann sem veldur slysinu. Þegar hann kemur upp að honum segir hann eitthvað á þessa leið: ,,Viltu ekki setjast inn í lögreglubílinn og hlýja þér? Sjúkraliðarnir eru að hlúa að stelpunni og það er betra ef við bíðum inni í bílnum og tölum saman."

,,Helvítis beyglan dældaði nýja bílinn minn"

Neibb ekki svartur brandari og ekki lygi. Hún mamma gæti ekki skáldað þetta.


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 16:33:25 / Inga

Líffræði smíffræði

Ég átti að læra fyrir líffræði alla helgina og fá ágætt á prófinu. Nú er klukkan hálffimm á sunnudagssíðdegi og ég er búin að horfa á tvær bíómyndir tvo hálftíma sjónvarpsþætti, leggja mig tólf sinnum, fara tvisvar í klukkutímasturtu, eitt þriggja tíma ferðalag um bæinn í leit að jólatré, fá eina tveggja tíma heimsókn frá ómótstæðilega krúttlegu eins árs barni og truflanir frá jólageisladisknum sem mamma spilar á replay, ekki má svo gleyma ógnarlega þrumuveðrinu sem ég missti af og beið eftir næstu hrinu endalaust af því ég hélt að sú fyrri hefði verið ruslabíllinn að störfum í götunni. Ég kann ósköp lítið í líffræði og svíður í augun, svo ég tali nú ekki um þann hluta miðtaugakerfisins sem er í hauskúpuholinu í baklæga holinu, af þreytu eftir síðustu tvær vikur.

Ég er búin að vera í stresskasti og á bömmer í allan dag og mynd af Charles Darwin hangir götótt á píluspjaldi inni í herbergi. Ég vildi óska að ég hefði fæðst á myrku miðöldunum. Þá þyrfti ég ekki að vita neitt og mætti bara eyða tímanum mínum á dansleikjum í flottum kjólum og glansandi fínum skóm.

En ég hef ákveðið að þetta sé ekki rétta leiðin til hamingju. Þetta próf gildir aðeins og einungis 20% af námseinkunn, sem sé 10% af stúdentseinkunn eins og Huna benti mér góðfúslega á. Þetta gæti alveg eins gilt ekki neitt. Þess má geta að skyndiprófin gilda líka 20% og ritgerðin+fyrirlestur líka 20%. Þar sem ég hef ekkert svoooo hræðilega einkunn í þeim atriðum hef ég ákveðið að láta jólaprófið sigla sinn sjó og syngja  bara og tralla fyrir hátíðarnar í staðinn.

Og ykkur sem bjugguð til 9 prófa töflu fyrir14 daga vil ég bara biðja vinsamlega að bíta fast í bonnið á ykkur.


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 22:37:31 / Inga

100% stelpa

Sumar stelpur eru eins og karlmenn í Evuklæðum. Ég þekki nokkrar slíkar. Þær lyfta lóðum, borða hamborgara í einum munnbita og vita hvað rangstaða er.

Ég er ekki ein af þessum stelpum. Ég veit ekkert um bíla og hef engan áhuga á íþróttum. Hins vegar kann ég á krakka, ég flæki alla hluti og ég elska að versla.

Ég veit fátt skemmtilegra en að vera í kjólum og háhælaskóm, að fara á listasöfn og gráta yfir bíómyndum. Ég veit að konur eru konum verstar (eitthvað sem ég held að strákar skilji ekki alveg til fulls, rétt eins og við skiljum ekki hvað högg á ,,danglið" þýðir) og dúddamía stærsti draumurinn er að vera prinsessa og búa í risastórri höll með ótakmarkaða kreditinneign og þrefaldan fataskáp. Svo verð ég auðvitað að giftast álitlegum prinsi eða lávarði, kannski baróni.

Neibb...ég verð aldrei strákastelpa.


» 15 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 08:47:09 / Inga

Ég dæmi bækur út frá kápunni

Það er undravert hvað annað fólk getur haft mikil áhrif á mig. Í allan gærdag nöldraði ég yfir hinu og þessu í fari ókunnugra einstaklinga og gat ekki sætt mig við að jarðarbúar væru jafn ófullkomnir og raun ber vitni.

Strætófarþegi #1:    Stelpan sem settist fyrir framan mig var allt of hamingjusöm. Hún var ein á ferð en brosti sínu væmnasta framan í allt og alla, og m.a.s. þó enginn væri nálægt. Það er enginn raunverulega svona glaður...í alvöru.

Strætófarþegi #2:    Stelpan sem settist fyrir aftan mig. Vitiði hvernig maður ropar svona pent með lokaðan munn svo enginn heyri? Hún gerði þetta í gríð og erg nema hún var ekki með neina pena ropa, nei ó nei. Við erum að tala um hressa karlaropa, svo háværa að hún yfirgnæfði strætóhljóðin, sem hún safnaði upp í sig og blés svo út úr sér með tilheyrandi innyfladaun. Ég sat með hádegismatinn í hálsinum (og hennar í hárinu) í miðju grænu gasskýinu og kyrkti hana í huganum.

Stræótfarþegi #3:     Stelpan með nammið. Eitt stykki busastelpa sat með félögum sínum flissandi í fremstu röð. Hún hafði fjárfest í svokölluðu Hockey Pulver sælgæti sem er, fyrir ykkur sem ekki vitið það, piparduft...duft já. Þetta gat hún ómögulega étið án þess að gera eftirfarandi: lyfta boxinu í andlitshæð, stinga tungunni ofan í, loka boxinu ennþá í andlitshæð á meðan hún gróf andlitið í einhverjum trefli sem var orðinn svo skítugur eftir allt þetta nammi að ég held hann eigi enga von um fullkominn þvott. Oj bara.

Strætófarþegi #4:    Gamla konan sem starði á mig eins og ég hefði stungið undan henni í Kalda stríðinu. Ég vissi ekki til þess að það væri kurteisi að stara á ókunnugt fólk.

Stræótfarþegi #5:    Pocahontas. Inn gekk undurfögur snót, minnti mig heilmikið á Pocahontas, og ég fékk vonarglætu um að strætóferðin gæti mögulega batnað. Sú tilhugsun var skotin í kaf, rifin í tætlur og traðkað á stuttu síðar. Hún var með ungabarn með sér í poka á maganum, ca. 4-5 mánaða gamalt. Það var nokkurra stiga frost og barnið var í þunnum flísgalla. Hún fór úr strætónum við Kringluna með merkjavörur í augunum. Eins gott að detta ekki í hálkunni með blákalt barnið á maganum...hún gæti þurft að fresta Kringluferð.

Á þessum tímapunkti var ég orðin sjóðandi vitlaus í skapinu og gaf óvart sætri gamalli konu  (ekki þessari krípí starandi) illt auga af ótta við að hún tæki upp á einhverjum óskunda eins og hinir.

Skapið lagaðist eftir smá einveru heima...

...en versnaði strax aftur þegar ég horfði á The Player á Sirkus. Þá var orðið nokkuð ljóst að skapofsinn var kominn til að vera, enda ekki annað hægt en að brjálast í svona ófullkomnum heimi.

Strætófarþegi #6:    Ég. Stelpan sem sat græn í framan með augun á stilkum og titrandi hendur og var við það að springa af ókunnum ástæðum. Manneskjan sem olli því að gamla gat ekki stillt sig um að stara; gelgjan passaði upp á nammið til öryggis, ef #6 skyldi nú springa úr reiði; væmna brosti geðsýkislega úr hræðslu og mamman unga fór nokkrum stoppistöðvum fyrr út af ótta um barnið sitt og gekk síðasta spölinn upp á spítala. Roparinn hefur enga afsökun.


» 6 hafa sagt sína skoðun