Ingapinga

16.06.2009 16:04:29 / Inga

Þú gerir mér ekki svo glatt til geðs

Lengi hef ég þjáðst af þeim kvilla að þrá allt sem ég get ekki eignast. Á barnsaldri stal ég litlum silfurlitum bíl frá vinkonu minni í næsta húsi á Mallorca og á unglingsárum var ég alltaf skotin í strákum sem áttu kærustur. Þegar árin færðust yfir mig varð hin óhemjandi löngun í það ófáanlega smám saman flóknari. Ég hætti að stela litlum bílum og bundnir strákar heilla mig ekki jafn mikið og áður, en ég fór þess í stað að vilja jólin í apríl og reglulega langar mig ekkert meira en að verða aftur krakki.
 Í dag bíð ég með eftirvæntingu eftir skólasetningu í haust, árleg geðbilun sem brýst alltaf fram um miðjan júní. Ég stóð mig að því fyrir fáeinum dögum að skoða kennsluskrána fyrir fög næsta hausts og hlakka gríðarlega til að gera haustinnkaupin í bóksölunni, hlamma mér aftast í Skriðu og byrja þekkingardrykkjuna. Ég hef nú þegar gefið mér sömu loforð og ég gaf upp í ermina í fyrra og hittifyrra og nokkur ár þar áður líka: ,,Ég heiti því að vera dugleg að læra og vera alltaf í topp fimm í tölfræðilíkönum við annarlok." Ég er þó staðráðin í að brjóta mynstur síðustu ára og standa við stóru orðin í þetta skipti.. en það var ég reyndar í öll hin skiptin líka. Ástæðan fyrir svikum mínum er líklega sú að ég vil einmitt alltaf það sem ég get ekki fengið. Í dag vil ég ekkert frekar en að sitja í fyrirlestrarsal og hlusta á tölu um barnaþroska og kennsluaðferðir, en þegar á hólminn kemur í september mun ég ekki þrá neitt frekar en að sleppa úr skólaprísundinni og gera eitthvað allt annað en læra. Þá mun ég líklega setja saman annan texta á borð við þennan og þreyta ykkur með röfli um það hvað sé leiðinlegt að vilja alltaf það sem er ekki í boði.


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.05.2009 12:57:38 / Inga

Elsku ríkisstjórn, skítt'íðig.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/05/29/bensinlitrinn_i_181_kronu/?ref=fphelst

Sjitt hvað mín er að fara að leggja bílunum og dröslast um á hjólinu úr þessu. Ríkið græðir ekki mikið úr minni buddu, enda lítið um blóðpeninga þar. Svo ætla ég ekki einu sinni að ræða þennan skattaskít og alltof miklu verðhækkanir sem stjórnvöld eru að henda í okkur. Vinstristjórn...hvaða geðsjúklingi datt það í hug?

Diskó.


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.05.2009 12:47:36 / Inga

Ritstífla

Ritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstíflaritstífla.

Diskó.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2009 21:23:54 / Inga

Bumbi óvinur minn

Tveir dagar liðnir frá síðustu færslu og ég er strax komin með aðra. Hvað er að gerast??

Ég fór í ræktina áðan og vil vinsamlega biðja roskna manninn með bumbuna og vondu lyktina að hætta að elta mig. Ef þú ert að lesa þetta gamli, þá þykir mér það leitt en þú verður að gera eitthvað í þínum málum. Það er ekki í lagi að lykta eins og gamall ruslapoki á almannafæri.
Við erum að tala um það að ég byrjaði á kósí skíðavélinni eða krossaranum, eða hvað sem þetta apparat er nú kallað, og þangað mætir Bumbi ferskur, eða ekki svo mikið, á gæjann við hliðina á mér. Þá átti ég korter eftir af tímanum en lét mig hafa það, ég varð samt ólýsanlega fegin að klára og komast á hjólið hinu megin í salnum. Þegar þangað var komið andaði ég djúpt og af mikilli áfergju áður en ég byrjaði átökin á ný. Þið skiljið líklega aldrei til fullnustu kæru lesendur hvernig mér leið svo þegar ég sá gamla kjaga í áttina að hjólunum stuttu síðar. Ég fékk síðan næstum því flog þegar hann tók sér aftur stöðu við hliðina á mér og byrjaði að hjóla. Eina hjólið sem var í notkun var það sem ég var á, og hann gat ekki valið sér annað hjól en það sem var við hliðina á mér! Ég held ég þekki hann ekki, en honum virtist vera mjög illa við mig.

Aumingja maðurinn samt. Hann má eiga það að hann er ofsalega duglegur að mæta í ræktina og hreyfa sig, ég fagna því alltaf þegar fólk tekur sig á og breytir lífinu til hins betra, en ég ætla samt að senda honum stórt og feitt hugskeyti um að setja einhvern kósí ilm í krikana á sér áður en hann kemur næst í spriklið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2009 17:06:26 / Inga

It's just one of those days..

Sunnudagur 3. maí. Ellefu dagar í fyrsta próf. Ellefu dagar í síðasta próf. Ellefu dagar þar til ég get sagt: ,,Fyrir ellefu dögum átti ég slæman dag".

Ég vaknaði í morgun og fór yfir allt sem ég ætlaði að gera. Fara í ræktina, fara í ljós, fara í Kringluna og eftir það myndi ég eyða deginum freestyle.

Ég byrjaði á ræktinni og eyddi þar rúmum klukkutíma í hopp og skopp og dass af magaæfingum. Það voru tvær vikur liðnar frá síðustu ræktarferðinni minni svo ég var frekar glötuð og næstum dottin á byrjunarreit bara. Ég ákvað samt að taka jákvæðnina á þetta og ætla að vera bara extra dugleg að ná mér á strik næstu daga, áfram Inga!

Um hálftvö gekk ég út úr næstum tómri Egilshöllinni og leiðin lá á sólbaðsstofuna í Grafarholti til að safna tani fyrir komandi daga í leiðindum og innilokun. Þá byrjaði fjörið. Ég renndi í hlað með sólskinsbros á vörunum, sjúklega hress eftir hreyfingu dagsins, og tók stefnuna á besta stæðið á pleisinu. Auðvitað var það laust, það beið eftir mér. Ég var að renna að stæðinu góða þegar einhver karlpungur svínar fyrir mig og slædar í það eins og hann sjái mig ekki, svo ég bölvaði á trilljón, ekki einu sinni nærri því hljóðlega. Þegar ég jafnaði mig reykspólaði ég eins og Vin Diesel á góðum degi í næstbesta stæðið og hugsaði að þetta væri nú bara eitthvað krúttlegt einsdæmi. Þegar ég hins vegar steig út úr bílnum og gekk að inngangi Megasólar sá ég blað í glugganum og eitt orð sem fór alveg með það: Lokað. Sjitt hvað kreppan er leiðinleg, sólbaðsstofur farnar að loka á sunnudögum. Skandall!

Þetta var samt ekki lengi að reddast, ég fór bara á Smart og fékk miklu meira fyrir peninginn en ég hefði nokkurn tíma fengið hérna í Reykjavík suður. Jess maður.

Það var ekki fyrr en ég kom heim að leiðindin héldu áfram. Ég steig inn í sturtuna, með gelgjutónlist í botni og góða skapið á góðri leið með að ná sér á strik, og hóf þvottinn. Þetta er frekar mikil rútínu-aðgerð svo ég var nú ekki mikið á varðbergi, en þegar ég beygði mig eftir sjampóbrúsanum fór allt af stað, aftur. Ég byrjaði á að reka hausinn í blöndunartækin og fá hressa kúlu, næstum eins og í Tomma og Jenna bara, ég get svo svarið það. Eftir að hafa blótað hressilega, bannað innan tólf alveg, fór ég aftur undir sturtuna en þá hafði hitastillirinn eitthvað gengið til í fyrrnefndu slysi og vatnið orðið brennandi heitt, sem auðvitað bitnaði á mér og mínum bera kroppi. Bölvið varð um leið bannað innan sextán og þegar ég datt svo úr öskunni í eldinn og skar mig á rakvél get ég svo svarið það að allt heila draslið var bannað öllum nema verstu sjómönnum.

En það eru svosem alltaf bjartar hliðar á öllum málum, þær hljóta nú að fara að koma í ljós. Nema þetta sé bara einn af þessum dögum.. Þá ætti ég kannski að sleppa því að taka retro með Örnu og horfa á Jurassic Park í kvöld, aldrei að vita nema maður mætti einu stykki T-Rex á leiðinni heim.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2009 09:57:43 / Inga

Lasarus

Sú lífsspeki að horfa alltaf á björtu hliðarnar, smæla framan í heiminn og allt það fékk á sig vænt högg í nótt og dag. Í þessum rituðu orðum ligg ég nefnilega heima á hitapoka, óglatt eftir allt vonda hunangsteið sem ég sturtaði í mig í morgunsárið út af svakalegu hálsbólgunni minni og síðast en ekki síst er ég með einhverja bölvaða kviðverki sem gera það að verkum að ég geng um í 90°horni. Eins og þetta sé ekki nógu ömó þá byrjaði þetta allt á aðfaranótt föstudags og blómstrar pottþétt um helgina. Allt gerðist þetta þó ég hafi verið jákvæðnimeistari síðustu daga og smælað tryllt framan í heiminn upp á síðkastið. Gö-latað.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2009 11:18:04 / Inga

Always look on the bright side...

Nei, haldiði ekki bara að síðasti vetrardagur sé mættur á svæðið, svona líka ógeðs- og ömurlegur. En það er allt í lagi því sólin kemur á miðnætti og allt verður gott á ný næstu mánuðina.

Í sumar ætla ég nefnilega að tölta um á hælaskóm í smart sumarkjólum, leggjast á Austurvöll og tana með bjór í hönd (sem er eiginlega möst því ég hef aldrei gert það og finnst ömó að vera útundan) áður en ég skottast heim í sandölunum mínum og grilla dýrindis mat úti á svölum með freknur og sólgleraugu á nefinu. Þá verða útilegurnar töluvert fleiri en síðasta sumar og ég fæ meira að segja hálfsmánaðar sumarfrí, nokkuð sem ég hef ekki notið í langan tíma. Síðan er alltaf svo margt um að vera, eins og hallópalló það eru kosningar næstu helgi, Eurovision er skammt undan og það er alltaf gaman að parta í kringum það, 17. júní er reyndar dagur sem hefur lit sínum glatað en allt í góðu, því ég á svo afmæli !! Hvílík gleði og hamingja sem fylgir sumrinu, ég get bara ekki beðið!

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2009 21:30:26 / Inga

Shine

Sjitt sjitt sjitt sjitt.

http://www.youtube.com/watch?v=LzHDY6mcWjM&feature=related

Shine er náttúrlega bara svalasta mynd í heiminum geiminum, sem má þakka Rachmaninov og þessu atriði ásamt fleirum. Tékkið á myndbandinu frá 3:20-5:10. Ég brunda á mig!

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2009 20:18:22 / Inga

Svaðil- og ófarir

Ég ætlaði að vera ferlega fersk og hjóla í ljós. Ég tók niður hjólið úr bílskúrnum og reif um leið niður haug af kössum sem hrúguðust yfir mig rétt áður en ég klemmdi mig á stýrinu. Út fór ég með hjólið og dreif mig af stað en það fyrsta sem ég gerði var að klessa á gangstéttabrún og fljúga á hausinn, vini nágranna míns til mikillar skemmtunar, en ég var svo heppin að hann stóð úti á svölum að reykja akkúrat þá. Til að forða mér frá þessu skelfilega vandræðalega augnabliki flýtti ég mér aftur á hjólið og spanaði af stað, en þá var keðjan dottin af svo ég spólaði bara að staðnum áður en ég valt á hliðina, nágrannavininum til enn meiri ánægju. Eftir að hafa sett mig stutta stund í handlagna gírinn og lagað keðjuna komst ég loksins í burtu frá þessum óþægilega manni, sem ég gladdi þó svo mikið, og vonaði að fall væri bara fararheill. Svo var ekki. Ég brunaði af stað og fannst ég svo sjúklega hip að það steig mér til höfuðs og ég ákvað að ég gæti alveg hjólað og talað í símann bæði í einu. Það gat ég ekki. Ég hringdi í Ágústu systur og talaði stuttlega við hana, það er að segja þar til ég missti jafnvægið, og um leið símann, og hjólaði svo beina leið út í blómabeð. Um leið og ég klöngraðist á fætur heyrði ég nokkrum metrum frá mér úr símanum: ,,Inga? Inga?! Dastu??".  Ég ákvað að ég ætti að halda báðum höndum á stýrinu í bili svo ég kvaddi og hélt leið minni áfram þar til ég var loksins komin í öruggt hvarf í ljósabekknum. Þar brann ég.

Ég ætla aldrei að segja ,,þetta er jafn auðvelt og að hjóla".

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.04.2009 13:27:26 / Inga

fresh

Siggi Palli enskukennari: ,,Birth of a Nation er allra mesta rasistamynd sem gerð hefur verið, og...."
Dagur: ,,fyrirgefðu, sagðirðu Birth of a Nation eða Birth of an Asian?"

Hahahahaha, æ þetta var svo gott. Ég vona að ég sé ekki sú eina sem hef hlegið að þessu í fjögur ár.

Annars er lítið að frétta héðan úr 113. Ég geri ekki annað en að hlakka til sumarsins þessa dagana...grill, bjór, sandalar, útilegur, freknur og annar aukinn frískleiki. Ég held ég hafi aldrei verið jafn föl á ævi minni og ég er núna, samt er ég nýkomin heim frá Tene. Ástandið er slæmt. Nema haldiði ekki bara að pabbi minn hafi uppfyllt gamlan draum hjá mér og splæst í gítar fyrir heimilisfólkið. Nú er ég búin að æfa mig og æfa mig og kann klárlega að spila Frost er úti fuglinn minn, og verð með hann á replay í tjaldferðalögum sumarsins. Ég mæli með að ferðafélagar mínir læri textann strax svo allir geti tekið vel undir.

Hefur svo einhver farið í Kringluna nýlega? Ég fór um helgina og hvílíkt ógeð sem við búum við á Íslandi, það er önnur hver manneskja feit, og næstum því allir skítugir eða ógeðslegir á einhvern annan hátt. Þvær fólk sér ekki lengur? Ég held barasta ekki, svei mér þá. Ég hélt að ég væri ógeð þegar ég fer algjörlega ómáluð út eða í sömu peysu og ég var í daginn áður, en alla malla það er hátíð miðað við meðborgara mína. Þetta er algjörlega til feitrar og háborinnar skammar og ég krefst þess að menn taki sig til í andlitinu og greiði sér a.m.k. áður en þeir stíga út úr húsi. Ekki að ég sé að tala um einhvern sérstakan blogg-lesanda eða neitt, en maður verður bara hálfþunglyndur af að horfa upp á þetta.

En yfir á léttari nótur, 17 dagar í sumardaginn fyrsta!

Koss og sleikur,
Inga


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.02.2009 12:40:47 / Inga

Flashback: 8.maí 2006

svart og hvítt-systur

Jæja. Það var og. Friðurinn var aðeins of lengi í paradís.

Við systurnar höfum verið furðugóðar vinkonur síðustu daga og búist var við stórstormi á hverri stundu. Þetta var einfaldlega of gott til að endast sögðu foreldrar okkar.

Rétt í þessu gekk ég út úr herbergi Gústu litlu og skellti á eftir mér. Jebbs. Friðurinn úti. Mér fannst nefnilega hrikalega skemmtilegt að snúa hana niður og rúlla henni fram úr rúminu sínu, með hausinn á undan, en þá fór hún að væla af því hún var víst með hálsríg og lenti á hausnum. Nú er hún að klaga í vinkonu sína.

Þetta var nú samt ekki svo mikið fall. Að vísu lenti hún hálf á bókahillunni og sópaði hana klín að miklu leyti. En kommon. Óþarfi að kalla mig fávita fyrir svona smámuni.

Nei...ég er ekki besta systir í heimi.

Nú segist hún vera skemmd á líkama og sál og skrifar pottó um þetta í lillabláu dagbókina sína. Fellir svo eitt tár á síðuna til að leggja áherslu á þennan gríðarlega sársauka. Má ég gubba?

Algjört mörder hvað sumir eru viðkvæmir.


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2009 01:01:08 / Inga

Mamma fer á fyllerí

,,maður á alltaf að gera það sem manni finnst í hjarta sínu."

,,og mér finnst bara það sem mér finnst. af því mér finnst það."

,,ef ég hefði farið í nám þá væri ég ofviti."

,,ég er heilinn á bak við þig Skúli"

,,ég fer í ræktina í 15 klukkustundir á viku og nú get ég rennt stígvélunum mínum."

,,háskólagengið fólk þvælist fyrir mér"

,,nei ég sagði það líka, háskólafólkið gengt þvælist fyrir mér.  ...eða..ha?"

,,ég er bara ég. og það er bara þannig."

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.02.2009 22:19:02 / Inga

íslenska leiðin...

Á þeirri góðu síðu www.webtender.com rak ég augun í þessa uppskrift að hanastéli. Hanastéli sem ég kem líklega ekki til með að prófa...nokkurn tíma.


The Icelandic way

Ingredients:

Mixing instructions:

Mix a normal glass of vodka and fanta lemon, drink down to half and fill up with beer and coke.


Er ég að missa af einhverju? Sem Íslendingur finnst mér undarlegt að þekkja ekki ,,hina íslensku leið" að áfengislandi. Spurning um að testa þetta einhvern tíma..svona í tilefni þess að íslenskt blóð rennur í æðunum mínum. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2009 23:30:01 / Inga

nös

Púllar það einhver nema ég að vera með bólginn nasavæng? Held ekki.

Fór á Role Models í kvöld og auglýsi hér með eftir félögum til að stofna riddarabardaga-grúppu með mér, og Unu að ég held, hún játaði svosem aldrei en neitaði ekki heldur. Ég er nokkuð viss um að hún sé on board. Við yrðum að stofna í það minnsta tvö lönd sem myndu svo berjast, vonandi allt að einu sinni í viku og þá helst í Hljómskálagarðinum. Í þessum heimi er ég sjálfskipaður keisari og einræðisherra. Svo það fari ekki milli mála. 

Bannað að mæta með alvöru sverð, þetta er bara þykjó. Í hverju landi verða að vera minnst fjórir þegnar og landið verður að hafa heiti. Fyrsti bardagi 12. feb nk. kl. 18:00 við Hljómskálann.

Sjáumst þá! Nösin er off limits.

Kveðja
Inga Lancelot

» 7 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 19:49:11 / Inga

Málkrókar?

,,Ávöxt þeirra óformlegu handsala er meðal annars að finna í viðreisn bóklegra mennta, sem verður í garði lútherskrar kristni á 16. og 17. öld og mjög einkennist af arfleifð húmanismans." 

Þetta er ein sú allra slakasta tilraun til að virðast vera hip textahöfundur sem ég veit um. Það væri svo auðveldlega hægt að draga prikið úr rassinum á þessari setningu og gera hana annars vegar læsilega og hins vegar skiljanlega venjulegu fólki eins og mér. 

til dæmis: ,,Afleiðingarnar af samvinnu kristins húmanisma og lúthersku siðbótarinnar má til dæmis sjá í viðreisn bókmennta lútherskrar kristni á 16. og 17. öld, en þær einkennast af arfleifð húmanismans."

Þetta var ekki svo erfitt. Ég vona samt að ég hafi skilið þessa leiðinlegu steinaldarsetningu rétt og fari ekki með neinar staðreyndavillur í þeirri seinni. Það væri aldeilis vandræðalegt, sjii... Pointið er allavega það að þó maður tali eins og hálfviti og snúi öllum setningum á tvist og bast svo orðalagið virðist fágað og fallegt og viturlegt, þýðir það ekki að maður sé fágaður, fallegur og vitur fyrir fimmaura. 

Hvað er til dæmis þetta ,,og mjög einkennist" ?? Að skrifa ,,og einkennist mjög" (mætti jafnvel sleppa mjög-inu) er bara miklu betra, allir sjá líka í gegnum hitt! Svo ég tali nú ekki um ,,Ávöxt þeirra óformlegu handsala" hahaha. Þetta er nú alveg met. Gö-lataður gæi þessi Heimir Steins.

Allavega, vonandi skemmtuð þið ykkur, efast samt um það..málfræðipistlar eru sjaldan vinsælir..

Sleikur!
Inga

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 34